Sweet Sugar

Thelma Rut

01.11.2007 21:15:24 / Thelma

NÝ SÍÐA

hellú hellú.....

langar bara að láta ykkur vita að ég er hætt með þessa síðu og er komin með nýja :D

 

 

----> thelmaruta.bloggar.is

endilega kíkja :D

THELMA**


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.06.2007 14:44:04 / Thelma

Blessuð

Halló halló....

 

Jáhh... kannski kominn smá tími á smá blogg hérna !!

 

Reyndar er ekki mikið að gerast í lífi mínu núna í augnablikinu....bara að vinna á fullu og sonna....eiginlega enginn tími fyrir neitt annað !! en samt gefur maður sér alltaf tíma fyrir vinina  =)

 

Alex mín kíkti til mín um daginn eftir vinnu og neinei..labbaði skvísan ekki allaleið heim til mín frá Korpu....harkan tekin á þetta bara, enda var hún alveg búin á því !! hehe...íkt stolt af þér sæta :D

 

 



 

Herdís mín er náttla komin frá Flórída, íkt tönuð gellan !! Djammið er búið að vera mikill partur af sumrinu og seinasta helgi var náttúrulega bara rugl....segi ekki meir !!!

og sunnudagurinn var bara snilld...:D

gaman að vita hvernig næsta helgi verður....hmmm !!! ;)

 

 

 

 

 

 

en jú það er kannski smá að gerast í lífinu núna...er að fara að eignast litla systur..váhhh get ekki beðið :D og já svo er það að ég er að fara að flytja !!!
er ekki alveg að fíla það...enda er þetta ekkert rétt hjá neitt...neinei...við erum að flytja suður í Garð....aðeins lengra en Keflavík....bögg !!!
en svona er þetta...maður fær víst engu um það ráðið !

bara versta við þetta er hvað þetta er langt í burtu frá öllum og öllu =/ þannig að maður verður bara að vera kominn á bíl áður en maður flytur... ekkert annað er um að ræða...

 

jájá....spennandi

 

en allavega nenni ekki að blogga meira

þangað til næst...

 

Thelma**

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.05.2007 14:08:34 / Thelma

******

jæja...það er nú blessað veðrið úti...sól og alles...ekki leiðinlegt ha !? ;)

langaði nú bara henda inn einhverju bloggi þar sem ég hef ekkert að gera og bíð eftir því að fara að vinna ! .....jebb þið heyrðuð rétt....ég er loksins komin með almennilega vinnu ;) hehe...og það á Lækjarbrekku :D very næææs !!

 lækjarbrekka !

Í gær skellti maður sér í bæinn og var það bara heví gaman....reyndar soldið mikið af fólki...bara hvaðan kom þetta allt fólk !!! ég ekki skilja !:|
en maður lét það nú ekki fara í taugarnar á sér....heldur skemmti maður sér bara...;)
ég verð nú að viðurkenna að þetta djamm var miklu skemmtilegra en á seinasta miðvikudag...
díííí marr.....annaðhvort voru allir underage eða of gamlir......ekki skemmtilegt !:S

jájájá...

jæja...læt þetta bara duga í bili þangað til eitthvað skemmtilegt og krassandi gerist ;):D

later peeps !

**Thelma




» 3 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 16:07:36 / Thelma

Eurovision***

jæja jæja...þá er kominn tími á smá blogg hérna !!! :D

Prófin búin og sumarfríið loksins komið.....bara næs :D!!

Helgin var hreint æði... :haha:
Á laugardeginum var haldið heim til Herdísar upp í Kjós þar sem að hún bauð öllum vinkonum sínum og Óttari og vinum hans í geggjað Eurovision djamm :D mamma hennar og pabbi voru svo æðisleg að bjóða öllum í grillveislu og höfðu undirbúið svona geðveikan djammstað í bílskúrnum hjá þeim....diskó ljós og alles haha....geggjað stuð ;D Mikið var nú drukkið og allir voru nú vel mökkaðir í enda kvöldsins....sumir reyndar oooof mökkaðir.....förum kannksi ekkert frekar nánar út í það !! hehe:$:haha:

Það sem einkenndi kvöldið eins og hún Dísa mín segir var
ÁFENGI OG DRAMA.... heldur betur :lol:

 

 Eurovision2007046.jpg 

Eurovision2007048.jpg 

Eurovision2007051.jpg 

Síðan var skellt sér í bæinn og hitti maður Ingibjörgu skvís þar....haldið var á Nasa þar sem að DJ Páll Óskar var undir stjórn og Eurovision þema....alveg hreint GEGGJAÐ !!:D 

Eurovision2007053.jpg

Þetta verður sko ógleymanlegt kvöld... 

Takk fyrir kvöldið allir....alveg frábært kvöld :D;)

 

**Thelma

 

Eurovision2007010.jpg


» 11 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 15:29:04 / Thelma

Smá afþreying =D

hæj hérna er smá afþreying fyrir ykkur krúttin mín þangað til að það kemur nýtt blogg =]

Endilega fylla þetta út ! =D 

 

1. miðnafnið mitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?

enjoy**

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 21:33:52 / Thelma

prófin nálgast !!!

 

 

10el99j.jpg


hæts....:D

 

 

jæja....síðasti skóladagurinn í dag og svo taka prófin við !!!

ég get svo svarið fyrir það að þessi önn er sú fljótasta sem hefur liðið siðan ég byrjaði í skólanum....ekki veit ég afhverju en annirnar hafa aldrei verið jafn fljótar að líða !!
alveg magnað !!!

 

 

*********

Sumarhátíðin var haldin í gær í skólanum hún hefur nú verið skemmtilegri....vantaði öll leiktækin sem hafa alltaf verið og góða veðrið:|....en það þýðir ekkert að væla undan því núna....vonandi verður hún skemmtilegri næsta ár !! ;)

 

Mynd tekin árið 2005 minnir mig !
 **********

Vá ég get sko ekki beðið eftir sumrinu....sól og fíneri :D8)

Áætlunin er að þræla sig út af vinnu í sumar svo að maður eigi nú einhvern pening fyrir veturinn og líka þegar maður skellur sér til Köben í haust :D jáhá....ég og Alexandra ætlum að skella okkur saman til hennar Þóru í nokkra daga og eiða svo seinasta deginum á Strikinu að VERSLA !!...:D;) hlakka óendanlega mikið til !!

Síðan er planið líka að safna sér fyrir bíl....held að það sé nú kominn tími á að splæsa á eitt stikki bíl....allt verður líka mun auðveldara þegar maður er kominn á bíl....það er bara staðreynd !  belive me !! ;)

 

 

jæja...nenni ekki að skrifa meira núna....

og ég efast um að ég bloggi eitthvað í bili....eða þ.a.s. ekki fyrr en prófin eru búin !

 

 

Kveð að sinni

*~Thelma~*
í sumarfíling ;) hehe....

» 12 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 00:22:45 / Thelma

eitt stykki blogg***

 

 vintageglamm.jpg

 

hæj hæj....

ákvað að skella einni færslu þar sem að ég er glaðvakandi !

Það er aldeilis hvað tímanum líður....það er bara vika í prófin og er maður á fullu núna að læra....svei mér þá !! Enda líka nokkur próf núna viku fyrir lokapróf sem  ég hélt að mætti ekki gera en svo virðist ekki...þannig að það þíðir víst lítið að þræta fyrir það ! :$

 Í gær skellti ég mér í bæinn ásamt honum Hödda vini mínum og vinum hans að djamma smá.... fór fyrst heim til Dabba vin hans Hödda...síðan skelltum við okkur í eitthvað partý í Breiðholtinu....sem var alveg ágætt bara en er að tala um það að ég þekkti ekki eina manneskju þarna inni....fekar lame :|... já ekkert smá langt síðan að ég fór seinast í bæinn ....enda var þetta fín ferð, kíkti á Cultura þar sem ég hitti kunningja mína sem ég vann með síðastliði sumar.....ekkert smá gaman að tala við þau, catsh up old times :D hehe.... og já Dóri....sorry ekkert gekk þannig að það verður víst enginn 1000 kall fyrir mig í þetta skipti !!  vonandi gengur það betur næst....;)

Síðan að prófum loknum þá er planið að fara að vinna stíft......spurningin er bara hvar !? er svona að reyna að leita mér að vinnu....en ekkert gengur ennþá.....spurningin er bara hvort að maður lendi ekki bara aftur hjá Fosshótelum.....reyndar er það ekkert það slæmt að vera þar en ég myndi þá frekar vilja vinna hér í bænum en að fara eitthvert út á land.....en sjáum bara hvað setur ! ;)

jæja nenni ekki að skrifa meira.....þarf líka að halda áfram að læra.....allt á fullu !!!

þangað til næst

**Thelma

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.04.2007 21:55:26 / Thelma

blessuð...

Jæja jæja....

 

Páskafríið loksins komið og er maður bara búin að vera mest í leti hérna heima ;) hehe...

Róbert bróðir fermdist núna þann 1.apríl ... orðinn 13 ára strákkauðinn ... kominn bara í fullorðinstölu... alveg ótrúlegt hvað þetta líður allt saman hratt !!  Fermingin hans Hjálmars verður liðin áður en maður veit af...ég get svo svarið það !!!

 

*****

 

Svo í gær kíkti ég með Dísu minni upp í sveit til hennar og var það heví nææs.... svo langt síðan að maður hefur komið þangað að það var nú bara tími til komin að heimsækja liðið þar ;)

 

Á leiðinni uppeftir stoppuðum við í Esso stöðinni í Mosó til að kaupa smá nammi,  síðan ætlaði Dísa að borga  með kortinu sínu...en þá sagði afgreiðslumaðurinn að þau gætu ekki tekið við því af því að rafmagnsleiðarinn frá Akranesi datt út og þeir gætu bara tekið við peningum eða Kreditkorti!! ....bíddu bíddu....ef að þeir geta ekki tekið við Debetkorti hvernig í ósköpunum eiga þeir þá að geta tekið við Kredit korti meina fer þetta ekki allt saman í gegnum posa...hvernig á kerfið þá að geta tekið bara við kredit en ekki debetkorti....skil þetta ekki alveg !!  :S

 

 

*****

 

Þann 3.apríl fékk að vita það að ég hafi komist inn í Klassíska Listdansskólann næsta haust :D ahhh....er svo ánægð...ég hlakka svo til að byrja aftur að dansa eftir þessa pásu sem ég tók mér....get varla beðið ;) hihi... það þíðir þá bara að fara að auka þolið sitt og fara að æfa soldið þá er maður orðinn góður fyrir haustið ;)

 

*****

 

Síðan er það söngkeppni framhaldskólanna þann 13-15 apríl og það á Akureyri !!

og er maur svona að pæla að skella sér....það á pottþétt eftir að vera íkt gaman...djamm alla helgina ;) hehe...

 

*****

Yesyes...

 

Þetta á eftir að vera stuð !

 

Later folks...

 

 **Thelma

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 00:39:41 / Thelma

Nýtt blogg !!

Hola amigos....

 

held að það sé kominn tími á nýtt blogg !!

   

Ekkert mikið hefur drifið undanfarna daga hjá mér.....það er bara búið að vera allt brjálað að gera í skólanum....kennararnir alveg óðir í að hafa próf eftir próf....og það þá allt á sama tíma ! give us a break one time !!!

 

En því linnir allavega aðeins því að það eru nú bara 4 dagar eftir af skólanum og svo tekur páskafríið við....hevíí næs....fá smá frí og svo auðvitað líka að fá að narta í  páskaegg...mmm nammi namm !!! ;):D

 

En ef ég nefni aðalega það sem er búið að vera að gerast hjá mér í þessum mánuði  :

 

-  Habitat að reka alla starfsmenn sína vegna einhverra breytinga, þannig að ég stend atvinnulaus í augnablikinu...:/

 

- ég skellti mér í inntökupróf  hjá Klassíska Listdansskólanum og er að vona að komast inn þangað.....er enn að bíða eftir svari....hlakka rosalega til að fá að vita það....en samt ekki ef það er neitun....en hvaða .....maður heldur bara í vonina ;) hehe....

 

- Djammið er nú búið að vera svaka vinsælt um helgarnar !!

 

 

svo núna þann 14-15 apríl verður saungvakeppni frammhaldkólanna....Finale.....á Akureyri og auðvitað reynir maður að redda sér þangað...á pottþétt eftir að vera íkt gaman ;)

  

Jáh...hvað get ég nú sagt meir...kannski maður ætti að byrja með svona slúður dálk....þeir virðast vera voða vinsælir allavega.....alltaf gaman að heyra eitthvað slúður..er haggi !? ;)

 

Jæja....held að ég láti þetta duga í bili....og ég lofa að reyna að vera duglegri að blogga....:)

(endilega kommenta...)

Adios...

 

**Thelma

 

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.03.2007 14:07:36 / Thelma

ÁRSHÁTIÐIN ER Í KVÖLD :D

já gott fólk þá er komið að því...allir að gera sig reddí fyrir kvöldið í kvöld því að......

 

 

ÁRSHÁTÍÐIN ER Í KVÖLD !!!

 

jeiii....og allir dansa svo af sér rassinn ;) hehe.....

Skemmtið ykkur vel :D

 

°°Thelma°°

 

 

 

 

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 11:52:32 / Thelma

Æðisleg helgi :)

 

jæjaa....

Síðasta helgi var hreint æði :D 

á föstudeginum kíkti hún Alexandra mín til mín og keyptum við okkur pízzu og leigðum mynd....síðan var bara tekið þessu rólega.....fórum og fengum okkur ís og rúntað aðeins....Takk fyrir kvöldið ástn :*

á laugardeginum var auðvitað haldið í bæinn....Herdís sæta fór með mér og var skemmt sér konunglega....:D dansað út í eitt....heheh(H)

á sunnudeginum kíkti ég svo til Alexöndru minnnar....þessi elska var að hjálpa mér með frönskuna.....og verð ég bara að segja að hún er hörku klár í frönksu haha..:D
Síðan bauð hún mér í mat sem Marta systir Alexöndru eldaði....og verð ég bara að segja að maturinn var hreintæði !!  ættir að verða kokkur elskan....hahah :D og síðan var haldið heim seinna um kvöldið og komið sér í háttinn... Takk fyrir mig elskurnar :*

jájájá....þetta var það svona helsta sem gert var um helgina !

Síðan núna eru að byrja árdagar í skólanum, svona kynningar dagar sem allir velja sér eitthvað og mæta í það bara.....geggjað sniðugt :D;)

Svo á fimmtudaginn er hin árlega árshátíð sem haldin verður á Lídó í þetta skipti....og auðvitað á maður að skella sér á hana, en spurningin er bara....á maður bara að fara í matinn eða fara í matinn og á ballið ???? hmmmm.....

en jamm....ætla að kveðja í bili....
blogga örugglega ekkert fyrr en eftir árshátiðina.... !!

þangað til...

adios...

°°Thelma°°

 

 

gogherds027.jpg

ég og Herdís :D


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 12:34:12 / Thelma

Leiðist :/ **

 

Sælt verið fólkið....

Datt svona í hug að skrifa eitthvað þar sem eg sit hérna fyrir framan tölvuna og láta mig leiðast í gati...hmmm:/

jájájá.....Ekki líður á löngu þar til Árshátíðin skellur á :D ahh...hlakka svo til ! 
Í næstu viku byrja árdagar í skólanum og þá verða það bara stuttir skóladagar ;) hevíí næs sko ! Við stelpurnar ætlum örugglega að hafa hitting á laugardaginn og gera eitthvað sniðugt...en bærinn kemur líka til greina hjá mér á laugardaginn, ójá mjög svo, you know girls ;) heheh....
Endilega bjallið í mig eða kommentið sem eru til í djamm á laugardag 8) ég er meira en til !!

 jæja ætla að hafa þetta stutt og laggott núna...

sía..

°°Thelma°°

 

Djamm085.jpg

Ég og Anna K. sæta :)

 

 

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 00:41:26 / Thelma

Kósý helgi !!

Hæj hæj....

 

Þá er þessi blessaða helgi liðin !!!

 

Maður var nú bara í chillinu þessa helgi...Herdís elska kom til mín um laugardagskvöldið og voru það bara kósý heitin tekin á hana....leigt mynd og keypt heilan heelling af  nammi :P hehe... bara næs !

  Tókum svo laugarann seinna um kvöldið....Ingibjörg, frænka Herdísar joynaði síðan og voru teknir nokkrir laugarar aftur ! ;D hehe....síðan var komið heim um hálf 6 um morguninn.....ekki slæmt ha !! :P;)

 

lk.jpg Herdís sæta :)

 

Síðan í dag kíkti ég loksins til ömmu og afa í Kefló....ótrúlega gaman að sjá þau....það var nú líka kominn tími til !!  Kíkti líka aðeins til bestustu frænku í heimi í leiðinni...:D jamm þessi dagur fór nú ekki til einskis,  það er alveg víst !!

  

  Jæja...ætlaði bara að lífga bloggið aðeins....;)

 

Later

 

°°Thelma°°

 

 

jk.jpg


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.02.2007 17:41:07 / Thelma

**** SÖNGVAKEPPNISBALL FÁ ****

 

.jpg

 

Eins og flest ykkar vita þá var Söngvakeppnisball FÁ haldin á Broadway síðastliðinn fimmtudag....og var þetta nú bara helvíti mögnuð keppni ;)  Ale og Særún gellur tóku þátt sem bakraddir í einu atriðinu....og jájá...lagið var á kínversku takk fyrir !!  Þótt að það var nú ekki sigurlagið þá stóðu þau sig með prýði bara...;)

Eftir keppnina var haldið heim á leið að gera sig til....síðan var haldið til Særúnar þar sem Ale elska málaði okkur...hún má nú eiga það að hún er nú meistari í að setja gerviaugnhár á mann...hehe...;),*

SngvakeppniF2007005.jpg

Eftir allt meke-up-ið  þá var haldið til Karvels í fyrirpartý...og var það bara geggjað fínt ! :D                      
Síðan var haldið á Nasa þar sem ballið var haldið og stóð Buff fyrir tónlistinni sem var bara heví fínt.....þeir voru nú ágætir !! ;)

 

 

Driver kvöldsins var hún Inga sæta.....eftir ballið kom gjellan að sækja okkur og keyrði með okkur á Subway til að hressa okkur aðeins við.....takk ástin :*

 inga sæta

Jamm þetta var alveg ágætt ball bara....svo er það bara árshátíðin næst og á hún eftir að vara mergjuð....get ekki beðið !! :D hehe

later ;)

°°Thelma°°

 

 

 

        ii.jpg

» 3 hafa sagt sína skoðun

04.02.2007 21:23:29 / Thelma

****

jæja....

kannski maður lífgi upp síðuna með nýju bloggi :P

Um helgina skellti ég mér Suður í Garð að passa fyrir frænku mína...ohh...dýrka þessi yndi :D;) það var gasalega gaman....horfðum bara á sjónvarpið, pöntuðum okkur pítsu og höfðum það bara kósý með smá nammi ;) hehe....

En hvað er eiginlega að fólki....í gær fóru þau mamma, Sverri og bræður mínir í bíltúr og allt í einu heyra þau í brjálaðri bílflautu og fyrr en varir klessir bíllinn á bílinn fyrir framan hann og ekkert smá högg :/ pælið í því að vita að þið séuð að fara að klessa á og eruð að bíða eftir högginu....jæks :|

Svo núna áðan fót ég og Róbert bróðir að sækja pítsu upp í Dalbraut, þegar við komum á Miklubrautina þá sjáum við fullt af blikkandi bláum ljósum þar, allt stoppar og allt gengur geggjað hægt fyrir sér...svo loksins þegar við fáum að halda áfram lít ég til hliðar og neinei....er ekki bara einn bíll í maski á brautinni 8|:| sjæsen !!! þetta var sko ekki falleg sjón......Afhverju fer fólk ekki varlega í umferðinni....þó sérstaklega þegar það er hálka....úfffúfúfúff....Bið alla um að fara varlega í umferðinni !!!

 
untitled.jpg


 

 

 

 

þetta er bíllinn sem við sáum á Miklubrauinni !

Betur fór en á horfðist þegar lítill fólksbíll fór yfir á öfugan vegarhelming og hafnaði framan á bíl frá ferðaþjónustu fatlaðra á Miklubrautinni

jæja vonandi nenntuð þið að lesa þetta...:$

Svo þann 8 febrúar verður haldin hin árlega Söngvakeppni FÁ !! ;) og þær Særún og Ale verða sem bakraddir í einu atriðinu...einhverju Kína lagi ! HAHA !! hversu fyndið verðu þetta ! :D hihi...you go girls ;)

en jamm held að þetta sé komið gott í bili !

later

°°Thelma°°

rt.jpg


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Dagsetning
23. febrúar 2012
Textabox
**Myndir 2005**
Hvaða ofurhetja ert þú!!!?
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 1 nóvember
Klukkan